Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

 FORSÍÐUEFNI: HVAÐ LÆRUM VIÐ AF MÓSE?

Hver var Móse?

Hver var Móse?

Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir minnst á Móse? Sérðu fyrir þér . . .

  • barnið sem móðirin faldi í körfu í sefinu við Nílarfljót?

  • drenginn sem ólst upp við vellystingar í Egyptalandi hjá dóttur faraós – en gleymdi þó aldrei að hann var Ísraelsmaður?

  • manninn sem var fjárhirðir í Midíanslandi í 40 ár?

  • manninn sem talaði við Jehóva * fyrir framan logandi runna?

  • manninn sem hugrakkur bað Egyptalandskonung um að leysa Ísraelsþjóðina úr þrældómi?

  • manninn sem að boði Guðs kallaði tíu plágur yfir Egyptaland þegar konungurinn storkaði hinum sanna Guði?

  • manninn sem leiddi Ísraelsþjóðina út úr Egyptalandi með stórbrotnum hætti?

  • manninn sem Guð notaði til að kljúfa Rauðahafið?

  • manninn sem fékk Ísraelsþjóðinni boðorðin tíu frá Guði?

MÓSE gerði allt þetta og meira til. Það er því ekki að undra að þessi trúfasti maður skuli vera í miklum metum hjá kristnum mönnum, gyðingum og múslímum.

Það liggur í augum uppi að Móse var spámaður sem vann mikilfengleg máttarverk. (5. Mósebók 34:10-12) Hann var fús til að vera öflugt verkfæri í höndum Guðs. En líkt og aðrir spámenn Guðs var Móse bara venjulegur „maður eins og við“. (Jakobsbréfið 5:17) Hann þurfti að kljást við svipuð vandamál en honum tókst að vinna bug á þeim.

Langar þig til að vita hvernig honum tókst það? Lítum nánar á þrjá eftirsóknarverða eiginleika sem Móse hafði til að bera og skoðum hvað við getum lært af fordæmi hans.

^ gr. 7 Jehóva er nafn Guðs samkvæmt frummáli Biblíunnar.