Hoppa beint í efnið

Er synd að reykja?

Er synd að reykja?

Svar Biblíunnar

 Í Biblíunni er ekki minnst á reykingar a eða annars konar notkun tóbaks. Hins vegar er þar að finna meginreglur sem sýna að óheilbrigðar og óhreinar venjur eru ekki Guði þóknanlegar. Það er því synd að reykja.

  •   Virðing fyrir lífinu. „Guð ... gefur öllum líf og anda og alla hluti.“ (Postulasagan 17:24, 25) Þar sem lífið er gjöf frá Guði ættum við ekki að gera neitt sem gæti stytt líf okkar, eins og að reykja. Reykingar eru ein af aðal orsökum dauða í heiminum sem hægt væri að koma í veg fyrir.

  •   Kærleikur til náungans. „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ (Matteus 22:39) Það er ekki kærleiksríkt að reykja í návist annarra. Þeir sem þurfa reglulega að vera innan um þá sem reykja eru í meiri hættu að fá suma þeirra sjúkdóma sem reykingafólk fær gjarnan.

  •   Við ættum að vera heilög. „Bjóðið fram sjálf ykkur að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn“ (Rómverjabréfið 12:1) „Hreinsum okkur af allri saurgun á líkama og sál og fullkomnum helgun okkar í guðsótta.“ (2. Korintubréf 7:1) Reykingar eru ónáttúrulegar og samræmast ekki því að vera heilagur, eða hreinn, vegna þess að þeir sem reykja skaða líkama sinn með eitri.

Segir Biblían eitthvað um notkun maríjúana eða annarra vímuefna?

 Biblían minnist ekki á maríjúana (einnig þekkt sem gras) eða sambærileg vímuefni. En hún hefur að geyma meginreglur sem útiloka notkun ávinabindandi efna til að komast í vímu. Auk fyrrgreindra meginreglna á eftirfarandi einnig við:

  •   Við ættum að hafa stjórn á huga okkar. „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af ... öllum huga þínum.“ (Matteus 22:37, 38) „Verið vakandi.“ (1. Pétursbréf 1:13) Sá sem notar vímuefni getur ekki haft fulla stjórn á huga sínum og margir verða háðir þeim. Hugur þeirra er upptekinn af að ná í vímuefni og neyta þeirra frekar en af uppbyggjandi hugsunum. – Filippíbréfið 4:8.

  •   Við eigum að hlýða yfirvöldum: „Minn þau á að lúta ... yfirvöldum“ (Títusarbréfið 3:1) Víða um lönd gilda strangar reglur um notkun ávanabindandi efna. Við eigum að hlýða yfirvöldum ef við viljum þóknast Guði. – Rómverjabréfið 13:1.

a Í þessari grein flokkast það að reykja sígarettur, vindla, pípur eða vatnspípur allt undir reykingar. Meginreglurnar, sem rætt er um, eiga þó líka við um notkun munn- og neftóbaks, rafsígaretta með nikótíni og annarra tóbaksvara.