Hoppa beint í efnið

Hvernig frelsar Jesús?

Hvernig frelsar Jesús?

Svar Biblíunnar

 Jesús frelsaði trúfasta menn og konur þegar hann gaf líf sitt sem lausnargjald. (Matteus 20:28) Þess vegna er Jesús kallaður „frelsari heimsins“ í Biblíunni. (1. Jóhannesarbréf 4:14) Þar segir einnig: „Ekki er hjálpræðið í neinum öðrum og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld sem getur frelsað okkur.“ – Postulasagan 4:12.

 Jesús dó fyrir alla sem iðka trú á hann. (Hebreabréfið 2:9; Jóhannes 3:16) Síðan ,uppvakti Guð hann frá dauðum,‘ og Jesús sneri aftur til himna sem andavera. (Postulasagan 3:15) Þar getur Jesús „til fulls frelsað þá sem hann leiðir fram fyrir Guð þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir þeim.“ – Hebreabréfið 7:25.

Hvers vegna þurfum við á því að halda að Jesús biðji fyrir okkur?

 Við erum öll syndarar. (Rómverjabréfið 3:23) Syndin myndar gjá á milli okkar og Guðs og leiðir til dauða. (Rómverjabréfið 6:23) En Jesús er ,málsvari‘ þeirra sem iðka trú á lausnarfórn hans. (1. Jóhannesarbréf 2:1) Jesús biður fyrir þeim, að Guð heyri bænir þeirra og veiti þeim fyrirgefningu synda sinna á grundvelli fórnardauða síns. (Matteus 1:21; Rómverjabréfið 8:34) Guð bregst við slíkum bænum sem Jesús ber fram vegna þess að þær eru í samræmi við vilja hans. Guð sendi Jesús til jarðarinnar ,til að frelsa heiminn‘.– Jóhannes 3:17.

Þurfum við bara að trúa á Jesú til að fá frelsun?

 Nei, þótt við verðum að trúa á Jesú til að öðlast frelsi er meira krafist. (Postulasagan 16:30, 31) Í Biblíunni segir: „Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.“ (Jakobsbréfið 2:26) Til að fá frelsun verðum við að:

  •   Læra um Jesú og föður hans, Jehóva. – Jóhannes 17:3.

  •   Byggja upp trú á þá. – Jóhannes 12:44; 14:1.

  •   Sýna trú okkar í verki með því að hlýða boðum þeirra. (Lúkas 6:46; 1. Jóhannesarbréf 2:17) Jesús sagði að ekki myndi hver sem segði við hann „Drottinn“ fá frelsun heldur aðeins þeir sem ,gerðu vilja föður hans sem er á himnum‘.– Matteus 7:21.

  •   Halda áfram að sýna trú okkar í verki þrátt fyrir erfiðleika. Jesús gaf það skýrt til kynna þegar hann sagði: „Sá sem staðfastur er allt til enda verður hólpinn.“ – Matteus 24:13.