Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 98

Ritningin er innblásin

Ritningin er innblásin

(2. Tímóteusarbréf 3:16, 17)

  1. 1. Líkt er orð Guðs og ljósagnótt,

    lýsir slóð um myrka nótt.

    Frelsi öðlumst ef fylgjum því,

    fögur von glæðist enn á ný.

  2. 2. Setjum innblásið orð Guðs efst,

    okkur sýnir hvers Guð krefst.

    Kennsla hans yfir krafti býr,

    kærkomin menntun okkur knýr.

  3. 3. Okkur fræðir það um Guðs ást,

    alltaf getum að því dáðst.

    Í því les allt mitt æviskeið,

    áfram mér lýsir rétta leið.