Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Biblíuspurningar og svör

Biblíuspurningar og svör

Eru öll trúarbrögð Guði þóknanleg?

Ef þú fylgist með fréttum hefurðu eflaust tekið eftir að illvirki eru stundum framin í nafni trúarinnar. Hinn sanni Guð getur því ekki haft velþóknun á öllum trúarbrögðum. (Matteus 7:15) Reyndar hefur stór hluti mannkyns verið leiddur afvega. – Lestu 1. Jóhannesarbréf 5:19.

Guð tekur samt eftir einlægu fólki sem elskar það sem er gott og satt. (Jóhannes 4:23) Hann býður slíku fólki að kynnast sannleikanum í orði sínu, Biblíunni. – Lestu 1. Tímóteusarbréf 2:3-5.

Hvernig er hægt að vita hvaða trú Guð hefur velþóknun á?

Jehóva Guð sameinar fólk af ólíkum trúaruppruna með því að kenna því sannleikann um sig og með því að kenna því að elska hvert annað. (Míka 4:2, 3) Kærleikurinn einkennir þess vegna þá sem ástunda sanna trú og hafa velþóknun Guðs. – Lestu Jóhannes 13:35.

Jehóva Guð sameinar alls konar fólk með því að kenna því að tilbiðja sig á réttan hátt. – Sálmur 133:1.

Þeir sem tilbiðja Guð í sannleika byggja trú sína á Biblíunni og lifa í samræmi við kenningar hennar. (2. Tímóteusarbréf 3:16) Þeir vegsama einnig nafn Guðs. (2. Mósebók 6:3, neðanmáls) Og þeir boða að ríki Guðs sé eina von mannkyns. (Daníel 2:44) Þeir líkja eftir Jesú og láta ,ljós sitt lýsa‘ með því að gera öðrum gott. (Matteus 5:16) Það er því hægt að þekkja sanna fylgjendur Jesú Krists á því að þeir banka upp á hjá fólki til að segja því frá fagnaðarerindinu um ríki Guðs. – Lestu Matteus 24:14; Postulasöguna 5:42; 20:20.